...Fanný&Svava&Gréta...

www.blog.central.is/hoochie

24.01.2007 21:13:56 / Fanný

Maður Með Mönnum...

Jæja..þá er nú kannski kominn tími til að fara að blogga aðeins ..maður er víst ekki maður með mönnum nema maður bloggi.
en allavega þá hefur nú fátt annað á daga mína drifið nema bara skóli og vinna...eftir að ég kom frá flórída er maður búin að vera þunglyndur án gríns...
ég vildi að Ísland væri svona hitabeltisland...djöfull væri það SWEET!!
heyrðu það er svo bara bjórkvöld á morgun og svo helgin framundan...ekkert nema tóm skemmtun...svava djamm?....Im out...

Lover Fení....



» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 14:01:54 / Svava

sólarlandarferðir..

Núna þarf maður að fara pæla í sólarlandaferðunum.. og langar mér og fanný allavega til að fara til Benidorm eða e-h svona kosy... ekki Costa, það er of dirty..

Mig langar sjúklega mikið að fara á þetta hótel þar sem ég var á því seinast.. og það er  vangefið.. eins og þið sjáið.. of mikið fólk og alltaf e-h að gerast..  veit að ég var hætt við allar ferðir á þessu ári, en ég meina það eru nú 8 mán. í þetta.. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 03:12:30 / Svava

köttur út í mýri

vááááá núna gæti ég bara dáið! Hvað gerir maður þegar maður er andvaka annað en að telja kindur?

ég sit hérna og stari út í loftið og óska þess að ég sé löngu sofnuð..

Ég er ógeðslega hamingjusöm en samt líka stressuð, með áhyggjur yfir prófunum. Aldrei skal ég aftur taka 28 einingar, nema vera miklu skipulagðri en þessa önn.

ég hlakka til á næsta ári.. ég ég ég..   later.. er rugluð eða eitthvað..

bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 00:05:41 / Svava

7,deeeeeeeees

Loksins get ég bloggað.:) Eftir að ég fékk að vita hver kom þetta mjög svo fræðandi komment hér að neðan! Þannig að í rauninni þarf maður ekki að mennta sig ef maður ætlar að komast inn á topp 10 í ríkustu menn heims.. :!::!::!:En held maður verði að vera virkirlega góður og meðvitaður í mannlegum samskiptum.. En jæja nóg um það..

Ég ER AÐ FARA ÚT EFTIR 7 daga..:!::!: ég hef ekki tíma til að fara alveg strax samt.. síðasta prófið mitt er eftir 8 daga.8|. svo er ég ekki neitt farin að pæla í þessu, veit ekkert hvað ég á að taka með út og ég er skíthrædd um að kötturinn minn verði dauður þegar ég kem heim, og enginn getur passað hann þar sem allir sem koma í heimsókn eru DAUÐhræddir í fyllstu merkingu við hana Lady mína,

imagesem ég skil reyndar alveg.. Þar sem hún réðst á mig um daginn og ég get ekki stigið í löppina alveg eftir það,:^) nenni ekki einu sinni á æfingu svona.. gæti samt alveg farið bara án þess að brenna. En já núna eru bara 4 próf eftir.. 1 á morgun og 3 í næstu viku.. þá er mín komin í "jólafrí" vonandi verða alvöru jól úti, held það alveg örugglega. :)

Ég fékk mestu gleðifréttir í heimi áðan..:D bróðir minn er að fara eignast baby.. sem ég sé bara ekki fyrir mér samt.. haha en það verður geðveikt.. eitt rauðhært barn í fjölskylduna í viðbót..8| eða kannski ekki samt..  :haha: Jææææææjja farin að lesa 2 barnabækur og halda áfram með lokaritgerð í íslensku sem ég verð að klára í nótt..! svo ég geti farið að halda áfram að læra undir þessi próf sem eftir eru..

mynd sem ég fann sem var tekin í jan-feb.. haha   :D

image

kv.svava hildur


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 19:03:02 / Svava

Pæling...

Sælar...

Seinasti skóladagurinn á morgun.. vúhú ! :) Og einnig seinasti tíminn í Dale Carnegie á morgun.. Þessi önn er búin að vera frábær svona mest allavega.. Er ekkert smá ángæð með að hafa farið á þetta námskeið, bara búið að vera gaman og frábært fólk þarna.. Og ég vona að þetta eigi eftir að nýtast mér í framtíðinni, sem ég reyndar efast ekki um. En nóg komið að því...   ég hef verið að hugsa..

Krakkar sem fara ekki í skóla eða hætta í skóla..

Þegar að náminu kemur finnst mér uppeldið eða semsagt foreldrarnir skipta lang mestu í þessu. Ef foreldrar styðja börnin sín ekki til að læra þá er svo miklar líkur á því að þau bara hætti. Eins og með mig, þá myndi ég aldrei hætta í skóla því það bara myndi ekki koma til greina í minni hugsun,  þar sem pabbi er bara búin að segja við mig endalaust oft hvað það sé mikilvægt að mennta sig. Ef ég myndi byrja vinna þá væri ég bara að lifa fyrir daginn í dag.. Sem maður á reyndar að gera að vissu leyti. Ég væri ekki að byggja neitt upp, ekkert að hugsa um framtíðina, eina sem ég myndi bíða eftir væru launaseðlar sem eru ekki neins virði seinna meir eins og t.d. þekking og einingar.. Ég hef tekið eftir þessu bara í kringum mig, hvernig þetta skiptist.          En auðvitað eru líka alveg þeir til sem eru í skóla og eru duglegir þrátt fyrir engan stuðning. Er alls ekki að alhæfa neitt...


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 09:04:52 / Svava

...

Komiði sæl..

Það er svo erftitt að vakna á morgnana núna í þessum kulda að það er ekki fyndið, ég er allavega alveg föst í rúminu á morgnana og þarf nokkrar tilraunir áður en ég er komin á fætur.. Það er líka 17 stiga hiti í íbúðinni sem er langt fyrir neðam meðalmörkin..

En það er voða lítið að segja frá núna.. Er bara á fullu að læra og í w.c. og sofa.. ég sef alltaf þegar ég get, sleppti því að borða í gær svo ég gæti lagt mig í gatinu, hversu slæmt er það. En já núna eru 2 vikur í lokaprófin og ég hlakka bara til, þetta er svo kósý tími eitthvað, hanga uppá bókasafni að lesa og hlusta á ipod endalaust...

Svo eru núna rúmar 3 vikur þangað til ég fer út..! :) Skrítið að ég sé að fara út, hef ekki tíma til að hugsa um það fyrr en tveimur dögum áður en ég fer út.. :) Þar sem það verður brjálað að gera þangað til.. En jæja ég er farin bæj :) skemmtilegasti skóladagurinn framundan....


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 21:40:15 / Svava

londonnnn

7 TÍMAR.... í London

Okei ég er ekki svona spennt eins og ég virðist vera, mér finnst ég ekki vera að fara, ekki byrjuð að pakka, ekki búin að finna vegabréfið mitt, taka út gjaldeyri eða neitt sko.. Ég á pottþétt eftir að fara bara að sofa eftir bjórkvöld og mæta í íslensku í fyrramálið.. Grínast Karen ég geri það ekki!!! :)

.....

...

 Erum búin að finna þetta fína hótel, erum semsagt ekki á sama hóteli og hin sem er ekkert nema frábært.. ég er bara orðin pínu spennt við að skrifa þetta ..En nóg um það, ætla ekki að gera ykkur meiri Abbó:)

Það er...

---Bjórkvöld í kvöld---

 

Sjáumst það.. hress og kát.. Later ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 09:22:33 / Gréta

Yaris Bílakaup...

Jæja stelpur mínar þá er loksins komið að því... vonandi ef allt gengur vel... ég fer á eftir með mömmu og Einari til Keflavíkur og við ætlum að kíkja á Yaris 2005 árg. sem ég kaupi VONANDI! ég er in need of a car akkúrat núna og þá þarf ég ekki að eyða miklu í bensín :) :lol: hann er silfurlitaður, gulllitaði er alveg úr sögunni. :) er að fara að kíkja á þetta og athuga hvort hann sé ekki í góðu standi og hvort það sé ekki rosa gott að keyra hann og svoleiðis :) ef ég kaupi hann þá kem ég í bæinn á honum og býð ykkur á rúntinn :) TIL Í ÞAÐ!?

úúújeeeee loksins á pæjubíl :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 16:30:40 / Svava

glæsó

3 dagar.. vúhú.. þangað til ég og Karen förum til London með stjórnmálafræðinni, ég .þekki ekki sálu í þessum tímum en það verður örugglega e-h breytt .þegar við komum heim. Þar sem við erum ekki búin að panta hótel óskum við eftir e-m til að leyfa okkur að gista, þarf helst að búa rétt hjá

 

Shii þetta verður sjúklega gaman. Leggjum af stað aðfaranótt föstudags, sem þýðir það að við förum á

 

bjórkvöld

 

 

og svo vökum við bara þangað til við leggjum af stað sem er e-h um 4 leytið..

 

 

 



Okey það er EINN mánuður eftir af skólanum..og óendanlega mikið eftir af áætlununum í skólanum.. Ekki alveg að stemma saman.

Enda er ég nuna farin að taka mig á, komin með sjúklegan áhuga á að læra..! J Og héééér eftir er ég farin að sofa snemmaá kvöldin, ég er ekki að grínast að ég er komin með bauga held ég.. sem er slææææmt!!! Er hætt að fara sofa kl 3 og 4 á næturnar.. ruglað sko...

 

 



En ég er farin að sofa.. nei læra.. later J


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 10:56:04 / Svava

Nýtt útlit

30.október 2006!

Lífið er æðislegt..

Kemur færsla fljótlega.. í kvöld..


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 17:17:02 / Svava

Helgin er komið,, ótrúlegt!!!!

Halló Halló

Þá er komið að því, partýið er í kvöld, en þetta verður bara e-h lítið,kósý bara.. Byrjar eftir kl.22.00 og verður þemað edrúmennska.. Grín en þetta verður klikkað gaman.. Bara við Borgókrakkarnir eiginlega Vúhú!:) Engir gestir eru leyfðir og verður bara þeim sem var boðið hleypt inn.. Ég veit að ég er glataður partýhaldari, en svona er þetta ;) Verður að hafa reglu á þessu.. Þetta er ekki alveg það stærsta hús sem fólk hefur komið inní.. J

 

 



En já ég var núna bara að vakna eftir smá hvíld eftir skólann, fór að sofa kl. 4 í nótt, já ekki segja váá Karen var að læra til 7.. Hún er líka e-h snarklikkuð, með metnaðinn alveg yfir hámarki..!!:)

Vöknuðum svo klukkan 7.55 og mættum samt á réttum tíma í skólann.. Vorum líka alveg hellaðar, og eftir rigninguna sem var á leiðinni.. Þetta var ógeð, svo var maður rennandi blautur og kaldur í skólanum með hárið í strimlum!  Haha J

 

 



Já við skelltum okkur á Jörfagleðina í gær sem var á Brodway og vá stóðst ekki undir væntingum, samt alveg ágætt, hvar var Páll Óskar? ? 

Eftir ekki góðar i undirtektir komu okkar reyndum við Karen og Inga að skemmta okkur þarna, samt ekki alveg að ganga þar sem fólkið þarna var í þvílíkum ham..Fullt tung eða e-h. Allt brjál, allir að slasa sig og ælandi og ógeð.. 

 

 



Á morgun er svo afmæli hjá Sunnu Dís og ætlum við stelpurnar að kíkja þangað, og Hallowen partý líka, kannski maður skelli sér á það, þarf bara að finna e-h playboy kanínu búning, á e-h svoleiðis?!?! J  Nei svona í alvöru, ég veit ekkert hvað ég á að vera.!!!

 

 



En jæja  núna er ég farin að gera e-h, er samt ekki að nenna að gera klárt fyrir partýið.. Ætla að fara í ljós og e-h kósý J 

 Sjáumst í kvöld fallega fólk!! J


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 14:38:41 / Svava

lalala

 

 



Jæja helgin búin.. og ég get ekki beðið eftir næstu!!

Hái beilaði á mér og Fanný á Hvolsvelli, sem er allt í goody þar sem það hefði endað í e-u rugli hehe! ;) nei grín!! J Þannig við vorum bara e-h að rúnta og hafa gamanm mjög rólegt! En næsta helgi verður klikkuð :D

gu006.jpg

 

Jörfagleði á fimmtudaginn! Á brodway, páll óskar verður að spila.. sjuklega gaman, miðasala hafin,takmarkað af miðum samt og þá er ég ekki að segja þetta svo þið kaupið miða!!! Allir að kaupa sem fyrst! Og sleppa bjórkvöldi þetta kvöld! J

Svo eru tvö afmæli á laugardaginn allavega.. og þar sem það var ekkert að gerast á föstudeginum þá ætla ég að hafa partý heima hjá mér.. !!! Tala við ykkur sem er boðið.. og það er EKKI frítt áfengi eða afmæli.. ;)

 

 



 

 IMG_2866.jpg



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 21:08:05 / Gréta

LONG TIME NO SEE!!!!!!!!!

jæja góða kvöldið hér sit ég bara að horfa á Oprah í góðum fíling, fór í dag í bílahöllina og prufukeyrði einn lítinn og agalega krúttlegan GULLlitaðan Yaris :) rosa gott að keyra hann og svona

kannski maður skelli sér á hann... reyndar vantar ekki felgu eins og á þennan :D og sá sem ég var að skoða var 3ja dyra :) ég væri nú alveg til í að skella mér á hann svona gulllitaðan prinsessubíl fyrir prinsessu eins og mig :) en ég hef nú ekki mikið að segja þannig ég skrifa bara einhvern tímann vonandi bráðlega :)

Kveðja Gréta

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 10:56:56 / Svava

yeah

GóðanDag!:)  Vikan hálfnuð, alveg að koma helgi aftur! J Og bjórkvöld annað kvöld...

 Um helgina er kannski planið að fara í sveitina eða í húsið hennar Fannýjar á Hvollsvelli! Bara kosy ferð hjá okkur, elda mat og svona, læra og fara í gufu og fl..

 

 

 

 



Auglýsi eftir bíl, helst gefint handa mér og Grétu.. þessi kuldi er að fara með mig, Gréta hefur þó kost á því að taka strætó, ekki ég.. J djók sorry! ;)

sofandi í strætó

 

 

 

Ég er hérna í Landafr. Tíma og kennarinn er með glærur á ensku.. Og ekki í fyrsta skipti, hvað er málið.. Svo er íslensku kennarinn að láta okkur þýða grein úr ensku. L ég kann ekki neitt í ensku náttla..!

 

 



London eftir 2 vikur!!!!!!!!! J

 

 

 

kv.Svava Hildur! :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 12:36:39 / Svava

BJÓRKVÖLD

helvitis andskotans ég blogga aldrei aftur!!!

BJÓRKVÖLD SAMT I KVÖLD

 BÆ


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 3 maí